HVAÐ GERIR PABBI ÞINN ???

Nonni litli er í sjötta bekk grunnskóla.

 

Dag einn var samfélagsfræði og þá spurði kennarinn hvað feður þeirra störfuðu.

Börnin svöruðu eins og þeim er lagið: Pabbi minn er lögga, brunaliðsmaður, skrifstofumaður, vinnur í verslun og svo framvegis.

 

En kennarinn tók eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og lét lítið fara fyrir sér.

Hvað gerir svo pabbi þinn, spurði kennarinn Nonna litla.

 

Hann dansar nakinn fyrir framan karla á öllum aldri á veitingastað á kvöldin og á næturnar.

Svo græðir hann fullt á því að fara með þeim áhorfendum sem best bjóða út í portið á bak við veitingastaðinn þar sem hann dansar einkadans fyrir þá í nokkrar mínútur.

 

Kennarinn varð eðlilega mjög undrandi yfir svari Nonna litla og í miklu fáti skipaði hann hinum krökkunum að fara að lita, en Nonna litla tók hann afsíðis.

 

Er þetta alveg satt sem þú sagðir um hann pabba þinn ... Dansinn og allt það?

Nei, nei, sagði Nonni litli feiminn.

 

Pabbi vinnur hjá einum af bönkunum en ég þorði sko alls ekki að segja það fyrir framan hina krakkana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er ástandið í hnotskurn hehe

Einar Pétur (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 01:43

2 Smámynd: Anna Guðný

Góður

Anna Guðný , 22.10.2008 kl. 10:50

3 identicon

HAHAHAHAHAHAHAHAHA geggjaður þessi ;)

JK (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 17:57

4 Smámynd: Elenora Katrín Árnadóttir

Hvar fékkstu þennan ?

Elenora Katrín Árnadóttir, 22.10.2008 kl. 19:10

5 Smámynd: Örvar Már Marteinsson

Ansi góður

Örvar Már Marteinsson, 23.10.2008 kl. 17:34

6 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

 Góður

Elísabet Sigurðardóttir, 24.10.2008 kl. 11:46

7 identicon

Hvað gerir Árni þinn????? hummm?

Jón Ingibjörn Arnarsson (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 00:05

8 identicon

Er ástandið orðið svona slæmt! Hvernig verður það eftir nokkra mánuði þegar allir þessi atvinnulausu koma á vinnumarkaðinn! Verður brandarinn enná í góðu þá?

Eymundur (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 06:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband