5.5.2009 | 03:11
Eigum við að vorkenna honum ???
Þessi frétt vekur upp gremju hjá mér, er verið að ætlast til þess að ég finni til með Björgúlfi ? Þetta er nú einn af þeim sem ég treysti áður, virkaði vel á mig, en annað kom á daginn. þessi maður ásamt nokkrum öðrum útrásarvíkingum sáu til þess að almenningur í landinu blæður. Viðskiptaráðherra hefur látið þau orð falla að almenningur mun að lokum borga fjármálafyllerí þessara manna.
Ég er reiður því að við stöndum frammi fyrir vonleysi þjóðarinnar, atvinnuleysi, stjarnfræðilega háa vexti og gjaldþrot heimilana í landinu, gjaldþrot fólks sem stundaði bara sína vinnu og stóð í skilum með sitt og tók ekki þátt í sukkinu. Hver og einn einasti íslendingur finnur fyrir þessu, börnin okkar finna þessu og börn næstu 10 til 20 ára munu finna fyrir þessu.
Hvert erum við komin? Ég er alla vega kominn á þá skoðun að það var rangt að Ísland gekk í ábyrgðir þessara manna. Það kom fram í fjölmiðlum að gjaldþrot Kaupþings og Glitnis eru að slá heimsmet og sitja þar á topp fimm yfir stærtu gjaldþrotin í heimi.
Þessi maður fær uppfjöllun sem telur í hundruðum milljörðum og við eigum að vorkenna honum, við almenningur sem skuldum nokkrar milljónir í íbúða- og bílalán, en snaran bíður okkar. Hann er ennþá í pressðu jakkafötunum sínum og klúturinn er vel brotinn saman í brjóstvasanum ! Sonur hans stunginn af úr landi og hefur það gott meðan sótsvartur almúginn er leiddur undir fallöxina.
Jóhanna sem lofaði öllu fögru í kosningabaráttunni hefur líka sent þjóðinni tóninn, þar verður alls staðar skorið niður og staðan er slík að ríkissjóður getur ekki tekið meira á sig. Þar að auki segja ráðamenn þjóðarinnar við okkur hálfvitana, semjið bara um skuldir ykkar !
Hvernig á venjuleg vísitölufjölskylda að semja ef fólk er atvinnulaust ? Bæturnar duga ekki og foreldrar standa frammi fyrir vonleysi og gjaldþroti og nýta bæturnar í að fæða börnin sem eru framtíð þjóðarinnar, þau eru ekki öfundsverð blessuð börnin ef stjórnvöld taka sig ekki á í málinu og bakka út úr því að taka ábyrgð á fjármálafylleríinu - þessar rúmlega 300 þúsund hræður borga þetta ekki upp á skömmum tíma, það mikið er víst.
Björgólfur ábyrgur fyrir 58 milljörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 03:12 | Facebook
Athugasemdir
Mikið til í þessu Árni, hann er klárlega einn af þeim sem eiga stóra sök í því hvernig við stöndum í dag. Maður vonaði einhvern veginn að það yrði tekið almennilega á þessum einstaklingum sem eru búnir að kaffæra okkur í skuldir næstu árin en lítið sem ekkert gerist í þeim málum. En við megum heldur ekki gleyma hverjir það voru sem færðu Björgúlfi Landsbankann á silfurfati þrátt fyrir að hærra boð hafi komið í bankann á sínum tíma. Finnst alveg grátlegt að þessum "jólasveinum" hafi tekist að framkvæma það sem þeim datt í hug án þess að nokkuð eftirlit hafi verið með þeim......og okkur blæðir og mun blæða næstu árin
Helgi Þór (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 16:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.