25.6.2008 | 11:06
Gospelkór Suðurnesja á Stóru Gospelhátíðinni
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.6.2008 | 22:52
Einkennileg hegðun Stöðvar 2
Ég er ekki að skilja þá sem ráða dagskrágerðinni hjá Stöð 2. Nógu mikið borgar maður fyrir áskriftina. Ég skil það ef sýningar standa yfir á nýju efni og það komi óvænt upp á að þættir eru teknir úr framleiðslu en að kaupa seríu með engan endi eru viðskipti sem ég hreinlega skil ekki veit ekki hvernig Stöð 2 getur boðið áskrifendum sínum upp á slíka heimsku.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.6.2008 | 02:48
Nýtt blóð í bæinn
En ég verð að hafa húmor fyrir því og vera meðvitaður um það að æfingin skapar meistarann. Að fara í golf og vera úti í fallegu sumarveðri er eitthvað sem heillar mig. Leiran í Garði og næsta nágrenni golfvallarins í Sandgerði er sjarmerandi á slíkum kvöldum. Það er nú ekki oft sem maður upplifir blankalogn hérna á Suðurnesjum, en það gerist við og við svona á kvöldin.
Ég er með það á stefnuskránni að njóta betur þeirrar náttúru sem er við túnfótinn hérna á Suðurnesjum. Við félagarnir fórum í síðustu viku úr á Reykjanes þar sem náttúran endurspeglast í hrjóstugu hrauni, sandi og virknin í jörðinni spýjast upp úr Gunnuhver með mögnuðum hætti. Þá tókum við göngutúr á berginu á föstudaginn og ég hreinlega skammast mín fyrir að hafa búið á Suðurnesjum allt mitt líf án þess að ganga bergið, þangað ætla ég aftur.
Við erum oftar en ekki svo stressuð að við tökum ekki eftir okkar nánasta umhverfi, verðum bara einn hlekkur í heildinni án þess að líta í kringum okkur. Svo þegar við fáum frí er brunað út á land eða hoppað í flugvél til fjarlægra landa. Besta dæmið er koma Árna Sigfússonar til Reykjanesbæjar. Hann var aðkomumaður sem kom til bæjarfélagsins og sá hugmyndir og lausnir eitthvað sem fór alveg fram hjá okkur hlekkjunum. Frá því að nafni minn tók við sem bæjarstjóri 2002, hefur íbúum í Reykjanesbæ fjölgað um rúm 20% ímynd bæjarfélagsins stóraukist. Það sannar það að oftar en ekki er gott að fá nýtt blóð í bæinn.
20.6.2008 | 12:02
Tökum fjárhagslega ábyrgð á gjörðum okkar
Ég að vísu geri mér fyllilega grein fyrir því að allt sem fer upp kemur einhverntímann niður. Hagkerfið virkar þannig, en með lagni má milda sveiflurnar, það tókst ekki í þetta skiptið og því þarf að grípa til aðgerða og vona ég að þær skili nú árangri.
Ég hef samt haft gaman af því að velta fyrir þessu góðæri og hvernig við íslendingar högum okkur á slíkum gleðitímum. Jeppakaup, húsnæði og annar varningur lífsgæðanna knýr okkur áfram. Ég er ekki að segja að ég sé skárri. Ungt fólk í dag vill helst ekki heyra á það minnst að taka við notuðum munum í búið, það þarf helst allt að vera nýtt, það flottasta og þá helst design. Margir endurfjármögnuðu húsnæði sín til að fá fé fyrir hjólhýsum, jeppum, fjórhjólum og fleiru og margir hverjir sitja í súpuunni núna.
Vegna hegðunnar okkar velti maður því fyrir sér hvort það sé hægt að bauna skuldastöðu heimilina í landinu á ríkisstjórnina? Er það ríkisstjórninni að kenna að bílalánið er hátt? Eða að Visa raðgreiðslurnar eru að buga þig? Seðlabankinn hefur jú áhrif á vaxtaþróun og það er á hreinu að vextir eru svívirðilega háir, en við sem einstaklingar eigum að vita hvað við getum leyft okkur hverju sinni. Við ein getum gert okkur grein fyrir því hvað buddan leyfir og við verðum að axla ábyrgð á skuldbindingum okkar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.6.2008 | 02:07
Eru karlmenn ekki eins hugmyndaríkir og konur?
Fyrir stuttu var ég staddur á afhendingu hvatningarverðlauna Reykjanesbæjar, en þetta er í fyrsta skiptið sem þau eru afhend. Fræðsluráð Reykjanesbæjar stendur að hvatningarverðlaununum og er hugmyndin á bakvið þau að hvetja alla sem koma að skólastarfi bæði á leik- og grunnskólastigi til að hugsa út fyrir rammann og láta gott af sér leiða í starfi.
Fræðsluráð auglýsti eftir tilnefningum og bárust þrjátíu tillögur af ýmsum toga. Ég fagna þessum nýju verðlaunum. Ég hef lengi langað að sjá eitthvað kerfi innan skólanna til að hvetja kennara og skólastjórnendur til dáða. Við vitum öll að það eru til kennarar sem leggja sig misjafnlega fram við störf sín, bara eins og tíðkast í öllum starfsgreinum. Nema að kennarar eru eru í raun á sömu launum, það hefur vantað hvatningu. Ég hef verið svo djarfur í hugsun að ég hef viljað borga góðum kennurum sem skila betri árangri en aðrir hærri laun.
Ég vona að þessi hvatningarverðlaun Reykjanesbæjar skili sér út í skólanna og hvetji kennara til að vera hugmyndaríkir í starfi og skili um leið betri kennslu og leiðsögn til barnanna. Eitt sem vakti athygli mína á verðlaunaafhendingunni var að allir sem voru tilnefndir voru konur. Engin karlmaður var í hópnum. Eru karlmenn ekki eins hugmyndaríkir og konur ? Eru karlmenn í þessum geira ekki að brytja upp á nýungum í starfi ? Eða var þetta bara hending í þetta skiptið?
Til að bjarga heiðri karlmanna þá get ég greint frá því að Styrmir Barkarson leiðbeinandi í Akurskóla og kennaraháskólanemi stóð fyrir teiknisamkeppni í öllum 4. bekkjum í Reykjanesbæ núna í vor. Hann fór ásamt fulltrúa Alþjóðahúsins og hitti alla bekkina og talaði um fordóma og vakti athygli á því að við erum öll eins. Krakkarnir tóku vel á móti Styrmi og félaga hans og verða myndirnar til sýnis á Ljósanótt í byrjun september.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 02:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.6.2008 | 00:40
Hundaæði
Mér var hugsað út í hundaeign í dag. Ég fór á hátíðarhöldin í skrúðgarði okkar reyknesinga. Það var annar hver maður með hund, enda hundahald yfir meðallagi hérna á Suðurnesjum. Flestir hundanna voru nú hinir rólegustu, en inn á milli voru hundar sem voru trítilóðir, geltandi og stjórnlausir þannig að eigendurnir áttu fullt í fangi með að halda þeim. Hjá sumum fékk hundurinn meiri athygli en sjálf börnin. Ég velti því fyrir mér hvort að þeir sem eigi svona dýr eigi að skilja þau eftir heima þegar fjölmennar uppákomur eiga sér stað. Einn hundurinn óð á skó karlmanns sem stóð við hliðina og var maðurinn í mestu vandræðum með að losna við hundinn. Svo rak ég augun í skilti sem bannar hunda í skrúðgarðinum !
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.6.2008 | 17:15
Ísbjarnaflutningur á fjárlög?
Við erum svo berskjölduð gagnvart svona dýrum, ísbirnir eru einu af þremur dýrum í heiminum sem éta fólk, hin eru krókódílar og tígrisdýr. Viljið þið vita af svona dýri lausu hérlendis? Ekki ég, þetta er bara spurning að verja sig og sína, kill og be killed.
Ég veit að það er falleg hugsun og hjartnæmt að hlífa dýrunum frá því að vera drepinn, sérstaklega þegar þau eru í útrýmingarhættu, en ég tel hér um algjöra tilviljun að ræða að við þurfum að drepa tvo ísbirni sama árið. Tel það verkefni að bjarga honum, deyfa og flytja til Grænlands sé verkefni upp á nokkrar milljónir og spyr mig hvort sú upphæð væri ekki velþegin annarsstaðar í samfélaginu? Hvað þá er þetta verður árleg uppákoma, þurfum við þá að setja í fjárlögin Ísbjarnaflutningur, 10 milljónir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.6.2008 | 02:06
Fagna Hönnu Birnu
Ég fagna ákvörðun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði þeirra leiðtogi. Ég hef verið á þeirri skoðun að Hanna átti að leiða listann í síðustu kosningum, er handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið hreinan meirihluta.
Með allri virðingu fyrir Vilhjálmi þá var hans tími liðinn. Hönnu bíður ærið verkefni að rífa flokkinn upp úr 27% fylgi sem er ólíðandi, ég treysti henni til þess. Hún þarf að ná að koma á stöðugleika í borgarstjórnarmálunum, vinna inn traust reykvíkinga á nýjan leik og sýna að flokkurinn er hæfur til forystu. Í borgarstjórnarflokknum er ungt fólk sem er tilbúið að axla ábyrgð, best hefði verið að Vilhjálmur drægi sig ég hlé og léti þeim eftir stjórnartaumanna.
Ég hlakka til að fylgjast með Hönnu sem borgarstjóra, hún fær samt ekki langan tíma til að snúa málunum í hag flokksins, en ég hef túr á henni og vona að reykvíkingar kjósi Hönnu Birnu til forystu í næstu borgarstjórnarkosningum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2008 | 11:36
Alltaf helgi
Það er alveg ótrúlegt en það er bara alltaf föstudagur. Ég veit ekki hvort það er blíðviðrið og spennningurinn fyrir sumrinu sem veldur því að tíminn flýgur áfram. Á veturnar þá er maður stundum að upplifa alltaf mánudaga !
Hvað um það, þessi helgi er þétt bókuð hjá mér. Í kvöld er ég veislustjóri í fertugsafmæli í Garðinum. Það er diskóþema og Páll Óskar mun halda uppi stuðinu. Ég er búinn að eyða vikunni í að velta fyrir mér í hverju ég á að vera. Ég á ekkert diskó-dæmi og er búinn að láta þetta þema fara í taugarnar á mér. En skemmtileg fluga skaut upp kollinum hjá mér og ég hafði samband við Sibba Prestley vin minn. Hann stundaði Elvis Prestley eftirhermu vesen í nokkur ár. Það var minnsta málið hjá honum að lána mér forlátan Elvis jakka, gylltur að lit með silfur palettum og gyllt bindi. Vona bara að ég eigi ekki eftir að skyggja á meistarann (Páll Óskar).
Á morgun tekur alvaran við, verð að vinna, Nesvellir opna formlega, listsýningar opna í Garðinum í tilefni 100 ára afmælisins og þeim þarf að gera skil. Á sunnudaginn er svo sjálft afmælið með hátíðarbæjarstjórnarfundi, afhjúpun listaverka og hátíðardagskrá þar sem sjálfur forsetinn mætir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)